Nú er komið heldur langt síðan ég bloggaði síðast.
Heilsan er í góðu lagi, ekkert neikvætt hefur komið útúr rannsóknum ennþá en ég fór í fleiri rannsóknir í vikunni og er að bíða eftir niðurstöðum úr þeim. Mér hefur samt liðið vel síðustu vikur. Á þar síðustu helgi var ég bara heima. Á föstudeginum átti einn kennarinn afmæli og eftir vinnu fórum við á einn bar að fagna afmælinu hennar. Við fórum 5 saman, þrír kennarar, ég og Michi, nýja stelpan frá Austurríki sem vinnur með mér. Eftir það fóru við Michi og Jasmin að borða á voða fínum spænskum veitingastað, maturinn var algjört æði. Svo fórum við á annan bar og vorum þar ásamt nokkrum vinum. Kvöldið var rosalega fínt. Á laugardeginum var ég að stússast að græja gjöfina hans Chris fyrir Valentínusardaginn um morguninn. Um 2 leytið fór ég með fjölskyldunni að borða á öðrum fínum veitingastað, nema þessi var mexikanskur. Svo sendi Chris mér skilaboð og sagðist vera kominn til Ocotlán og ég fór til langömmu hans og afa. Um kvöldið fórum við á fótboltaleik og svo í partý með frænku hans. Á sunnudaginn héldum við uppá afmæli frænku hans á veitingastað með fjölskyldunni.
 |
Olé, spænski veitingastaðurinn |
 |
Ég og Joss í afmæli frænku þeirra Chris |
 |
Gjöfin frá Chris! |
Í síðustu viku vann ég bara á mánudeginum. Það var ekki kennsla á þriðjudag og miðvikudag þannig ég fór með Chris heim á mánudeginum eftir vinnu. Á fimmtudaginn fór ég í rannsóknirnar í Guadalajara og á föstudaginn héldum við Chris uppá Valentínusardaginn! Við fórum út að borða á rosa fínan veitingastað og svo á fría tónleika í miðbæ Guadalajara með nokkrum mexikönskum hljómsveitum sem var mjög gaman.
 |
Myndarlegi strákurinn minn :) |
 |
Dýragarðurinn |
 |
Dýragarðurinn |
 |
Ég með hluta af fjölskyldunni hans Chris |
Laugardeginum eyddum við í dýragarðinum í Guadalajara sem var rosa fínt. Það er heldur betur farið að hlýna hérna og hitinn í dýragarðinum var um 30°C. Þetta er samt ekkert miðað við hvernig hitinn verður í mars og apríl. Við komum heim til Ocotlán seinnipart laugardagsins með ættingjum hans. Ég borðaði með þeim og fór svo heim. Í gær héldum við uppá afmæli frænda hans Chris með fjölskyldunni. Borðuðum góðan grillmat og svo dansaði ég við langafa hans Chris sem er rúmlega níræður. Dagurinn var rosalega fínn!
 |
Dansandi við langafa hans Chris |
Það er allt rosa fínt að frétta af mér, gengur vel í vinnunni, með fjölskyldunni og allt saman. Í dag var ég að knúsa eina stelpuna mína sem er með Downs. Hún knúsaði mig fast og sagði svo 'te quiero mucho' sem þýðir að henni þyki mjög vænt um mig. Mikið er gefandi og gaman að vinna með þessum krökkum <3 Í dag bókaði ég einnig flugið mitt heim og lendi á Íslandi eld snemma morguninn 25. ágúst. Fer héðan um hádegi 23. ágúst og verð hjá foreldrum hans Chris í Californiu í einn dag áður en ég held heim til Íslands.