miðvikudagur, 27. nóvember 2013

Mazamitla og fleira

Tíminn líður alltof hratt.. Finnst eins og ég hafi bloggað í gær en það eru víst komnar 3 vikur síðan.
Af mér er allt gott að frétta, ég er reyndar búin að vera með mikla magapest síðustu 2 vikur og fór loksins til læknis í dag, fékk þrennskonar lyf og þau skilaboð að ég eigi bara að sleppa því að borða á götunni og verð að passa rosalega vel hvað ég læt ofaní mig. Hóst mamma mín hefur verið rosalega dugleg að elda voða hollt ofan í mig og passar að það sé engin fita í því sem ég borða. Þetta er víst einn af þeim göllum við að flytja í svona land. Margir staðirnir á götunni mjög góðir, en kannski frekar skítugir og maður verður að passa sig rosalega vel. 

Fyrir tveim vikum fór ég í brúðkaup með Emmu, Omar og Chris. Brúðkaup eru alltaf jafn skemmtileg! Er með eitt voða skemmtilegt myndband af Omar dansa í brúðkaupinu. 
https://vimeo.com/79800277

Á sunnudagsmorguninn fórum við Chris svo til Mazamitla sem var algjört æði. Skoðuðum okkur um staðinn sem er rosalega fallegur, enda einn af Pueblos magicos hér. Við fórum svo heim á mánudagskvöldinu þar sem ég var í fríi á mánudeginum.






Á síðustu helgi var ég bara heima, ótrúlegt en satt! Fyrsta helgin í næstum 2 mánuði þar sem ég er heima. Á föstudagskvöldinu fór ég að borða með Emmu og Fabiolu. Fabiola er frá Sviss og verður hér fram að 13. desember. Svo hittum við Lili og fengum okkur ís. Chris kom svo óvænt til Ocotlán :) Við enduðum kvöldið svo öll saman á kareoke bar, og að sjálfsögðu varð ég að taka lagið. Söng samtals 3 lög, stelpurnar hjálpuðu til með tvö. Laugardeginum eyddi ég svo með Chris að mestu, seinni part dagsins hittum við Emmu og Omar og fórum að á Emmu og Fabiolu keppa í fótbolta. Um kvöldið fórum við svo á lítinn sveitabæ hér rétt hjá þar sem voru fiestas. Við dönsuðum þar fram á nótt með systrum hans Omars og frændfólki. Sunnudagurinn var svo frekar rólegur, fór með Chris til langömmu hans og langafa og við vorum þar í dágóðan tíma.





Það er nóg að gera framundan enda fer að styttast í jól. Ég er ekki enn komin í almennilegt jólastuð þar sem á daginn eru rúmlega 20°. Ég er að fýla veðrið í botn en væri samt gaman að sjá smá snjó. Á morgun fer ég til Guadalajara og svo ætlum við Chris að eyða helginni í Puerto Vallerta, strönd hérna rétt hjá, get ekki beðið!! Helgina eftir það er svo jólapartý hjá Siijuve sem verður líka rosa gaman, alltaf nóg að gera! Í fyrramálið ætlar hóst pabbi minn með mig á pósthúsið þar sem ég á pakka frá mömmu og pabba, mikið hlakka ég til að fá hann í hendurnar. Þangað til næst.

fimmtudagur, 7. nóvember 2013

Síðustu vikurnar

Jæja, það er komið ansi langt síðan ég bloggaði og það hefur verið rosa mikið að gera hjá mér undanfarið. Hef farið í allskonar ferðalög og gert helling af skemmtilegum hlutum! Síðustu nokkrar helgar hef ég verið í Guadalajara með Chris og fleirum, alltaf voða gaman að fara þangað :) 

Fyrir tveimur vikum fór ég með Chris, Emmu og Omar til Tequila sem er frábær staður, þar sem flest allt tequila í Mexico er framleitt. Fórum í tour um Jose Cuervo verksmiðjuna og smökkuðum allt frá Tequila á byrjunarstigi og svo alveg tilbúið. Mér finnst þetta ekkert rosalega gott en gaman að taka þátt.






Á síðasta föstudag héldum við uppá Dia de los muertos í skólanum en dagurinn sjálfur var á síðasta laugardag. Um morguninn var ekkert rosalega mikið um að vera en seinnipartinn mættu allir krakkarnir í búningum og máluð í framan og við vorum með rosa fiesta sem var algjört æði. 



Eftir vinnu á föstudaginn fór ég beint til Guadalajara og við Chris og Omar ásamt vinum hans Omars fórum á tónleika með DJnum Zedd. Ég skemmti mér mjög vel, fyrstu techno tónleikarnir mínir. Á laugardaginn vorum við Chris bara í rólegheitunum. Seinnipartinn fórum við alveg niður í miðbæ Guadalajara og þar var allskonar um að vera útaf Dia de los muertos. 



Á sunnudaginn var Chris að keppa í Chapala sem er bær við vatnið. Við Omar fórum með honum og á meðan hann var að hita upp og svona röltuðum við um og Omar sýndi mér bæinn sem er mjög fallegur. Svo horfðum við á leikinn ásamt frænkum þeirra. Ég keyrði svo hingað til Ocotlán með frænkum þeirra Chris og Omar. 





Þessi vika hefur verið heldur róleg, ég fékk á þriðjudaginn pakka frá Finlandi en foreldrar hennar Emmu eru í heimsókn! Fékk svartan lakkrís, mjólkursúkkulaði, hrökkbrauð og augabrúnalit, algjör draumur! Hér er ekki hægt að lita á sér augabrúnirnar því allir eru hvort er með svo dökkar og nota ekki svona lit, bara blýanta eða tattú. Fór strax í það þegar ég kom heim að lita augabrúnirnar.

Í gær var skrýtnasta veður sem ég hef á ævi minni séð, og ég bý á Íslandi! Mér svo heitt að ég gat ekki verið í peysu í skólanum um morguninn. Svo um 3 leytið byrjaði að rigna, svo byrjaði að rigna klökum en samt frekar heitt úti. Þetta gerist víst voða sjaldan hér þannig ég var eins og krakkarnir mínir, rosalega spennt yfir þessu og við áttum erfitt með að einbeita okkur að skólanum.


Í vikunni keypti ég mér flug til Californiu og verð þar 28.desember - 7.janúar. GET.EKKI.BEÐIÐ!! Fer með Chris og við erum búin að kaupa okkur miða á tónlistarhátíð um áramótin og svo ætlar hann að sýna mér allt. Það er víst ennþá ódýrara að versla þar heldur en hér þannig kannski bíð ég bara með það, H&M er nefnilega að opna í Guadalajara um helgina og mig langar alveg rosalega að fara. Reyni að vera duglegri að blogga. Reyndi líka að halda smá dagbók og hef reynt að skrifa niður allt það merkilega sem gerist hérna en ég gleymi því voða oft. Ég þarf líka að vera duglegri að halda dagbók því tíminn líður alltof hratt. Jólin eru enn óákveðin, "foreldrarnir" þurfa að vinna í kringum jólin en okkur langar að fara í eitthvað ferðalag, það kemur í ljós seinna. Það er allavega nóg um að vera eins og alltaf.