Tíminn líður alltof hratt.. Finnst eins og ég hafi bloggað í gær en það eru víst komnar 3 vikur síðan.
Af mér er allt gott að frétta, ég er reyndar búin að vera með mikla magapest síðustu 2 vikur og fór loksins til læknis í dag, fékk þrennskonar lyf og þau skilaboð að ég eigi bara að sleppa því að borða á götunni og verð að passa rosalega vel hvað ég læt ofaní mig. Hóst mamma mín hefur verið rosalega dugleg að elda voða hollt ofan í mig og passar að það sé engin fita í því sem ég borða. Þetta er víst einn af þeim göllum við að flytja í svona land. Margir staðirnir á götunni mjög góðir, en kannski frekar skítugir og maður verður að passa sig rosalega vel.
Fyrir tveim vikum fór ég í brúðkaup með Emmu, Omar og Chris. Brúðkaup eru alltaf jafn skemmtileg! Er með eitt voða skemmtilegt myndband af Omar dansa í brúðkaupinu.
https://vimeo.com/79800277
Á sunnudagsmorguninn fórum við Chris svo til Mazamitla sem var algjört æði. Skoðuðum okkur um staðinn sem er rosalega fallegur, enda einn af Pueblos magicos hér. Við fórum svo heim á mánudagskvöldinu þar sem ég var í fríi á mánudeginum.
Á síðustu helgi var ég bara heima, ótrúlegt en satt! Fyrsta helgin í næstum 2 mánuði þar sem ég er heima. Á föstudagskvöldinu fór ég að borða með Emmu og Fabiolu. Fabiola er frá Sviss og verður hér fram að 13. desember. Svo hittum við Lili og fengum okkur ís. Chris kom svo óvænt til Ocotlán :) Við enduðum kvöldið svo öll saman á kareoke bar, og að sjálfsögðu varð ég að taka lagið. Söng samtals 3 lög, stelpurnar hjálpuðu til með tvö. Laugardeginum eyddi ég svo með Chris að mestu, seinni part dagsins hittum við Emmu og Omar og fórum að á Emmu og Fabiolu keppa í fótbolta. Um kvöldið fórum við svo á lítinn sveitabæ hér rétt hjá þar sem voru fiestas. Við dönsuðum þar fram á nótt með systrum hans Omars og frændfólki. Sunnudagurinn var svo frekar rólegur, fór með Chris til langömmu hans og langafa og við vorum þar í dágóðan tíma.
Það er nóg að gera framundan enda fer að styttast í jól. Ég er ekki enn komin í almennilegt jólastuð þar sem á daginn eru rúmlega 20°. Ég er að fýla veðrið í botn en væri samt gaman að sjá smá snjó. Á morgun fer ég til Guadalajara og svo ætlum við Chris að eyða helginni í Puerto Vallerta, strönd hérna rétt hjá, get ekki beðið!! Helgina eftir það er svo jólapartý hjá Siijuve sem verður líka rosa gaman, alltaf nóg að gera! Í fyrramálið ætlar hóst pabbi minn með mig á pósthúsið þar sem ég á pakka frá mömmu og pabba, mikið hlakka ég til að fá hann í hendurnar. Þangað til næst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli