Nú er kominn heldur langur tími síðan ég bloggaði síðast og mamma er búin að tuða mikið um nýtt blogg!
Síðustu vikur hafa verið frekar rólegar. Ég er ennþá í allskonar rannsóknum hér. Um daginn var verið að leita að nýrnasteinum en ekkert fannst, í næstu viku verð ég sett í sónar til að skoða nýrun, magann og allt saman. Vefjagigtin hefur líka verið frekar slæm, fór í svona nálastungumeðferð á þriðjudaginn sem var ótrúlega gott. Fyrsta skiptið sem ég prófaði svoleiðis og ég fann þvílíkan mun.
 |
Frá hótelinu í Manzanillo |
Í byrjun mars kom pabbi hans Chris í heimsókn, kom með allskonar dót í eldhúsið fyrir okkur (mig) og ég hef verið að baka svolítið, loksins! Við fórum öll saman til Manzanillo helgina 8-9 mars, ég, Chris, pabbi hans og frændi. Chris keppti þar leik í steikjandi hita og svo lágum við á ströndinni í algjörum lúxus. Einnig fórum við Chris til Barra de Navidad í lok mars. Það er lítill strandbær svona 4 klukkutíma frá okkur. Þar hittum við íslendinga sem var örugglega eitt það skemmtilegasta sem ég hef lent í á síðustu 7 mánuðum.
 |
Íslendingahittingur í Barra de Navidad |
Fyrir utan það hef ég ekki verið að gera mikið. Er alveg á fullu að læra pole (súlu) fitness og finnst það verða skemmtilegri með hverjum tímanum. Er búin að missa 7kg síðan í janúar og er alsæl.
Nú er komið vor og um miðjan mars fór heldur betur að hlýna. Meðalhitinn er í kringum 30°C á daginn og 20°C á nóttunni sem gerir það mjög erfitt að sofa. Hitinn hefur farið hæst uppí 41° og ég hélt að ég myndi bráðna. Ég hef sem betur fer lítið brunnið en það er enginn dans á rósum að vera í svona hita. Matarlystin minnkar alveg heilmikið, þessu fylgir endalaus þreyta, bæði krakkarnir og við kennaranir erum alveg dösuð í skólanum og hitinn á bara eftir að verða meiri.
Ég á bara eftir að vinna 5 daga og er svo komin í 2 vikna páskafrí. Stefnan var sett á að fara til Oaxaca, Chiapas og Guatemala með stelpunum sem eru hér en ég treysti mér ekki í það útaf vefjagigtinni. Ferðalagið er mjög langt, samtals myndum við sofa 6 nætur í strætó og hinar á lélegum hostelum. Í staðin ætlum við Chris að fara á einhverja strönd og hafa það huggulegt. Í byrjun maí förum við svo á stóra tónlistarhátíð í Mexico City sem heitir Electric Zoo. Við ætlum að njóta næsta mánaðar eins og við getum því í maí flytur Chris útaf fótboltanum. Drengurinn er með tilboð frá allskonar liðum og er að standa sig ekkert smá vel, er rosalega stolt :))
 |
Hitinn er alveg svona mikill, gróðurinn bara brennur |
Tíminn líður alltof hratt og áður en ég veit af verð ég komin heim. Ekki nema rúmlega 4 mánuðir eftir og nóg eftir að gera. Skal reyna að vera duglegri að blogga en á ekki von á því að setja neitt inn fyrr en eftir páskafríið. Þá verður eflaust nóg að segja frá!
Hann eldar, ég baka!
 |
Afmælispartý í skólanum :) Ég og hinn kennarinn með afmælisstelpunni |
 |
Hluti af hópnum mínum |
 |
Þessi besti <3 |
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt :) maginn er vonandi orðinn góður núna og allt í blóma, Heyrumst fljótlega ♥ MA
SvaraEyða