Eins og kom fram
í síðasta bloggi var nóg um að vera hjá mér um jól og áramót. Á laugardeginum
21. Desember fórum við Emma til León þar sem við eyddum 2 dögum með íslenskum
félaga mínum. Mikið var skrýtið að tala íslensku annað en bara við tölvu. Á
laugardagskvöldið fórum við út að skemmta okkur, fórum á club með lifandi rock
tónlist og svo annan með lifandi banda! Skemmtum okkur rosalega vel. Á sunnudeginum
fórum við í moll ekki svo langt frá húsinu hans Kristinns, en annars gerðum við
voða lítið, Emma var orðin veik og gat lítið gert. Á mánudagsmorguninn vöknuðum
við Emma snemma, fórum niðrí bæ að skoða okkur um, röltum þar í nokkra tíma og
svo fórum við heim til Ocotlán, semsagt á þorláksmessu. Seint um kvöldið þegar ég var komin heim fór ég
með Chris og fjölskyldunni hans að heimsækja ættingja og var með þeim fram á
nótt. Fór svo heim og var hér ein í húsinu aðfaranótt aðfangadags, voða
skrýtið. Á aðfangadagsmorgun vaknaði ég frekar snemma, heyrði örlítið í mömmu,
pabba og Ragnari á skype og græjaði mig. Fór svo með Chris og fjölskyldunni
hans að heimsækja fullt af ættingjum. Heimsóttum langömmu hans og afa og þaðan labbaði ég í bæinn með foreldrum
hans, systur og frænkum og var með þeim í nokkra tíma. Fórum í stóru kirkjuna
niðrí bæ í smá stund, allt voða fallegt svona á jólunum. Við eyddum miklum tíma
með langömmu hans og langafa ásamt allri stórfjölskyldunni en enduðum kvöldið
heima hjá frænku hans Chris með nokkrum ættingjum. Borðuðum saman týbískan
Mexíkóskan mat, vorum með posada og á miðnætti kysstust og knúsuðust allir því
þá voru komin jól. Og þá fengu börnin að opna pakkana sína. Við sátum svo
og spjölluðum heil lengi og ég fór heim um 3 eða 4 leytið. Á jóladag fór ég með
Chris, foreldrum hans og systur til Guadalajara þar sem við vorum fram að
laugardeginum 28. des. Við vorum þar að gera húsið hans fínt, koma fyrir nýjum
húsgögnum og svona! Ég kom heim um hálf 7 leytið
seinnipart laugardags til að pakka og taka til, klukkan 8 sótti svo bílstjóri
okkur Chris og fór með okkur á flugvöllinn í Guadalajara.

Stelpurnar voða spenntar að opna pakkana sína!
Spila með afa sínum!
Á ströndinni í San Diego
Ferðalagið til
USA gekk ekki vel. Vélin seinkaði um svona klukkutíma og þegar við komum til
Tijuana var strætóinn sem við áttum að taka til San Diego hættur að ganga.
Starfsfólkið hjá Volaris reddaði okkur því leigubíl en við þurftum að bíða í
rúman klukkutíma eftir honum, klukkan var orðin rúmlega 3 þegar við loksins
fórum yfir landamærin. Að sjálfsögðu var ég stoppuð á landamærunum og það tók
alveg 45 mín eða svo. Þurfti að fá nýjan stimpil í vegabréfið mitt og svo svona
Visa Waiver. Var spurð endalaust af spurningum og var orðin ansi þreytt þegar
við loksins komumst út uppúr 4. Þegar allt þetta var búið leituðum við af
leigubílnum okkar sem átti að fara með okkur niður í miðbæ San Diego en þá hafði hann
farið þannig við vorum þarna föst við landamærin. Sem betur fer var strætó einmitt á leiðinni til Santa Ana, algjör heppni því hann átti að hætta að ganga nokkrum klukkutímum áður. Klukkan 6 vorum við loksins
komin til Santa Ana þar sem frændi hans Chris sótti okkur og skutlaði okkur
heim.

Disneyland
Fyrsti dagurinn
var frekar rólegur, fórum á Newport beach, röltuðum þar um og svo keyptum við
Sprinkles cupcakes, sem er það besta sem ég hef smakkað!! Um kvöldið fórum við
á svona Comedy show þar sem vinur hans Chris var með uppistand ásamt fleirum.
Á mánudeginum
fórum við til San Diego þar sem við vorum yfir áramótin. Fórum á Rave sem er
tónleikar með fullt af DJum. Ég skemmti mér miklu betur en ég átti von á, allt
öðruvísi en ég er vön en rosalega gaman og mikið af fólki. Á nýársdag fórum við
til ömmu hans Chris þar sem móðurbróðir hans átti afmæli, eftir það hittum við
nokkra vini hans og vorum með þeim framá nótt. Ég keyrði heim um nóttina sem
tók um klukkutíma. Var ansi smeyk enda eru 4-5 akgreinar á freewayinu og keyra
allir frekar hratt. En við komumst heim án vandræða, gaman að prófa
þetta! Restin af tímanum fór í að vera með stórfjölskyldunni og vinum hans
Chris, versla og ferðast um. Við fórum til Los Angeles, Hollywood og í
Disneyland sem var alveg hreint æðislegt. Skemmti mér svo vel. Við erum strax byrjuð
að skoða möguleikana á að fara aftur út, annaðhvort um páskana eða í kringum
afmælið mitt.

Heimleiðin gekk rosalega vel. Chris, pabbi hans, systir og afi
fóru með mig til Tijuana á flugvöllinn. Það er minnsta mál í heimi að keyra frá
USA til Mexico. Við vorum ekkert stoppuð í neitt tjékk en stoppuðum
samt svo ég gæti athugað með Visað mitt og svoleiðis. Miklu rólegra þarna megin
heldur en að koma inní USA. Flugið gekk vel og ég var komin alla leiðina
heim á þriðjudagskvöldið. Svo strax á miðvikudagsmorgun byrjaði ég að vinna,
krakkarnir rosalega glöð að sjá mig og ég þau. Þessi helgi og næsta vika verður
mjög róleg. Á fimmtudaginn förum við til Puebla á ráðstefnu hjá samtökunum.
Emma verður þá hætt að vinna og kemur ekki aftur til Ocotlán, í staðin koma 2
nýir sjálfboðaliðar. Það verður rosa skrýtið að hafa hana ekki hér en gaman að
kynnast nýjum. Verður líka gaman að hitta alla hina sjálfboðaliðana sem ég kynntist fyrstu vikuna mína hér.
Gleðilegt ár
elsku vinir og fjölskylda, hlakka til að sjá ykkur í haust!
Þetta hafa verið öðruvísi en skemmtileg jól og áramót hjá þér :)
SvaraEyðaSkemmtilegt blogh.
MA