þriðjudagur, 21. janúar 2014

Veikindi og ráðstefna

Síðustu dagar hafa verið ansi óvenjulegir. Ég kom heim frá USA á þriðjudegi og byrjaði strax að vinna á fullu. Á föstudaginn fékk ég verstu ælupest sem ég hef á ævi minni fengið og endaði á því að fara á sjúkrahús þar sem ég fékk sprautu í rassinn. Sprautan hjálpaði með ógleðina og ég ældi ekki nema einu sinni eftir hana. Lækninum leist ekkert á það hvað ég væri búin að vera mikið veik og vildi senda mig í frekari rannsóknir þannig á laugardagsmorgun fór ég í blóðprufu. Það kom lítið sem ekkert útúr blóðprufunum, engin sýking eða neitt svoleiðis sem er ágætt. Svo var ég eld hress á sunnudaginn og fór með nokkrum vinum fótboltaleik hjá Chivas, sem er eitt stærsta lið í Mexico. Völlurinn var rosa flottur og bróðir vina míns var að spila með liðinu. Chivas unnu leikinn 1-0 sem er bara flott, ekki það að ég hafi rosa mikið vit á þessu ;)















Strákurinn hugsar vel um mig!
Á mánudagsmorgun mætti ég í vinnu þar sem ég var send strax heim. Kennararnir voru að mótmæla og opnuðu ekki skólann þar sem þau fá svo illa borgað frá ríkinu. Ég borðaði svo hádegismat og var í góðu, aðeins farin að finna fyrir verkjum í vinstri hliðinni. Um 2 leytið urðu verkirnir svo miklir að ég gat lítið hreyft mig. Ég átti erfitt með að labba, gat enganvegin sest upp eða lagst niður. Systur minni leist ekkert á þetta og við pöntuðum tíma hjá lækni. Ég var komin til læknis um hálf 5 og var orðin rosalega aum. Hann byrjaði e-ð að taka á mér, þrýsta hér og þar á kviðinn og reyna að finna hvaðan verkirnir kæmu. Þá sagði hann mér að ég væri með nýrnasteina og þyrfti þá aðgerð en að hann vildi senda mig í frekari rannsóknir til að vera viss. Ég var sett í sónar og svoleiðis til að reyna að finna steinana en sem betur fer leit allt vel út.  Svo kom í ljós að ég væri bara með slæma sýkingu og fékk verkjalyf og svo lyf við sýkingunni. Ég tók mér frí í vinnunni alla vikuna enda var líkaminn alveg í rugli eftir allt álagið. Á þriðjudaginn gerði ég lítið, fór bara að spjalla við Jorge Luis hjá samtökunum í smá stund. Á miðvikudaginn fór ég að tala við skólastjórann minn og útskýrði fyrir henni allt sem hafði gerst og að ég gæti ekki unnið út vikuna. Eftir það fór ég strax til Guadalajara og var í rúman sólarhring hjá Chris. Hann kann svo sannarlega að dekra við stelpuna sína. Passaði uppá það að ég borðaði sem ég hafði ekki gert í c.a 3 daga, eldaði fyrir mig og græjaði allt! Er rosalega heppin með hann!

Verið að kveðja fjölskylduna hennar Emmu

Á fimmtudaginn kom ég heim uppúr hádegi og græjaði mig. Ég hitti Emmu um miðjan dag og við fórum í síðasta skiptið að kaupa okkur ís. Um kvöldið héldum við svo til Mexico City með nokkrum frá samtökunum á ráðstefnu. Við vorum komin til Mexico City um hálf 6 um morguninn og fórum beint til Morelos.

Ráðstefnan var skemmtileg. Áróra er loksins komin til Mexico og kom færandi hendi. Eva mágkona var svo góð að kaupa fyrir mig smá pakka og sendi með Áróru! Ég kynntist fullt af skemmtilegu fólki frá allskonar löndum, ræddi um lífið og tilveruna í Mexico. Versta við helgina var að sjálfsögðu að kveðja Emmu. Hún er farin í 2 mánaða ferðalag og flýgur til Finnlands 13. mars en við eigum nú eftir að hittast einhverntíman seinna.





Húsið sem ég var í ásamt 5 stelpum

Ég kom til Ocotlán rétt fyrir 5 í gærmorgun, fór heim með töskuna mína, lagði mig í rúman klukkutíma og fór svo til Guadalajara þar sem læknirinn bað um fleiri rannsóknir. Ég fann allt alveg ein í risa borginni og fæ niðurstöðurnar vonandi á laugardaginn.
Það tekur heldur betur á að vera svona veik svona langt frá öllum en ég er rosalega heppin með fólkið í kringum mig hérna. Hóst foreldrarnir eru auðvitað rosalega stressuð en þau passa vel uppá mig. Chris er alveg sá allra besti í þessu, heldur mér alveg niðrá jörðinni á meðan ég bíð eftir öllum niðurstöðum og stend í þessu veseni.


Í morgun fór ég loksins að vinna, mikið var það gaman! Í næstu viku byrjar svo önnur stelpan að vinna með mér sem verður spennandi. 

4 ummæli:

  1. Mússí mússí farðu vel með þig elskan.
    MA

    SvaraEyða
  2. Knús frá okkur frænda. Farðu vel með þig. Kveðja, Ásdís og Siggi

    SvaraEyða
  3. Aldeilis búið að vera mikið að gera hja þér :) Gaman að lesa bloggið þitt, gangi þér rosa vel Björk mín.
    Kv. Alma Bj.

    SvaraEyða
  4. Farðu vel með þig elsku besta!
    Knús frá klakanum <3
    Kv. Pálína Ósk

    SvaraEyða