fimmtudagur, 24. október 2013

Fiesta í skólanum :)

Í dag er dagur Sameinuðu þjóðanna og var hann haldinn hátíðlegur í skólanum mínum. Allir dagar sem eru eitthvað eru haldnir hátíðlegir í Mexico enda nýta þau hvert tilefni fyrir fiesta!

Hér er morguntörnin..


 Fínu börnin mín fengu öll eitt land og áttu að klæða sig eftir því.

Allir að syngja saman
Viljum öll heimsfrið!
Ég, kennarinn og börnin! Vildi svo skemmtilega til að ég var akkúrat með þennan hóp í morgun, var alsæl :) Hinir hóparnir voru bara að horfa á. Eftir þetta fórum við svo að læra og dagurinn hélt áfram eins og venjulega.


 Svo eftir hádegi var bara fiesta, allir krakkarnir tóku þátt, rosa skemmtilegt. Erum búin að vera að æfa lengi og allir foreldrarnir komu að horfa á og svona!
Hér er sett upp sagan af Christopher Columbus!

Þessi dönsuðu

Jorge Eduardo

Börnin úr mínum bekk að leika "Naranja dulces" 

Dafne og Nadia, báðar með Downs, stóðu sig svo vel og voru svo fínar :)

Tania Maria og Mia Judith, úr bekknum mínum!

Ég, Eloisa og bekkurinn okkar! Brittany var ekki með í dag, stelpan sem ég er mest með.

Fína Dafne!!

Svona dagar eru svo rosalega skemmtilegir, Mexicanar kunna þetta alveg! Ég tók yfir 100 myndir, á eftir að fara í gegnum þær betur, átti mjög erfitt með að velja bara nokkrar til að setja hingað inn.

Svo í kvöld liggur leiðin aftur til Guadalajara, í fyrramálið ætla ég að fara að horfa á leikinn hjá Chris, svo kemur Emma þegar hún er búin að vinna og við ætlum að versla aðeins. Á laugardaginn er stefnan sett á Tequila, hlakka mikið til :)

sunnudagur, 20. október 2013

2 mánuðir!!

Í dag eru tveir mánuðir síðan ferðalagið hófst en mér finnst eins og það hafi gerst í gær. Þessi vika og helgi voru mjög róleg, gerði voða lítið. Er ennþá ein heima en hóstforeldrar mínir eru væntanleg heim á morgun.

Þar sem ég hef aldrei kunnað að liggja í leti, hvað þá þegar ég er veik bauð ég Emmu og Chris í pönnsur á mánudaginn. Emma kom við á leiðinni til mín og keypti Nutella og ávexti og við borðuðum með bestu lyst. Pönnsurnar hjá mér verða alltaf betri og betri!

Á þriðjudag og miðvikudag gerði ég ekki mikið annað en að vinna, fór snemma að sofa bæði kvöldin því ég hef verið rosalega slöpp í bakinu. Á fimmtudaginn strax eftir vinnu fór ég að tala við yoga kennara sem kennir rétt fyrir utan miðbæinn, c.a 25 mínútur fyrir mig að labba úr vinnu. Mér leist rosalega vel á hana og staðinn og ætla að byrja á morgun, hlakka mikið til!



Á föstudaginn strax eftir vinnu labbaði ég á aðal rútu stöðina hér í bænum og tók næstu rútu til Guadalajara. Chris sótti mig þegar ég var komin og við tókum 2 strætóa og eina lest til að komast þangað sem hann á heima. Hann fær vonandi bíl fljótlega og þá verður auðveldara að komast á milli en það er kostur hversu ódýrt það er að ferðast með almenningssamgöngum. Á föstudaginn fórum við á kaffihúsabar að horfa á fótboltaleik með herbergisfélaganum hans. Fórum heim strax eftir leikinn. Í gær fórum við á mercado del mar sem er risa svæði með bara sjávarréttar veitingastöðum og fiskibúðum. Lyktin var svo góð og við borðuðum ostrur og svo tostadas með krabbasalati og svo með marlin. Maturinn var æðislegur. Eftir matinn fórum við heim og löbbuðum aðeins um hverfið hjá strákunum áður en ég fór aftur til Ocotlán um kvöldið. Ég ferðaðist ein frá húsinu hans Chris að aðal rútu stöðinni, var voða stolt, týndist ekkert og komst alein á leiðarenda!

Guadalajara

Hef mikið verið að skoða þessa staði sem Heiða benti mér á. Þetta eru allskonar staðin sem ekkert endilega eru týbískir ferðamanna staðir en allir mjög fallegir.
http://www.pueblosmexico.com.mx/pueblos_magicos.php
Við ætlum að byrja á þeim stöðum sem eru næst okkur og þar má nefna Tequila og Tapalpa. Ætlum jafnvel að heimsækja annan staðinn á næstu helgi.


Þessi varð að fylgja, þetta er Jesus Alexander að borða jógúrt í skólanum, gleymdi skeiðinni heima en reddaði sér bara!

mánudagur, 14. október 2013

Október so far!

3. október, á fimmtudeginum fyrir rúmri viku strax eftir vinnu tókum við Emma rútuna til Guadalajara þar sem Chris og Omar sóttu okkur. Við vorum í c.a 3 tímar þar með þeim, fengum okkur að borða, spiluðum pool og kíktum á cumbia bar. Kvöldið var rosalega skemmtilegt. Um miðnætti tókum við svo rútuna frá Guadalajara til Puebla sem eru sirka 8 klukkutímar. Í Puebla gistum við hjá vini okkar sem var að halda uppá afmælið sitt. Á föstudaginn fórum við að borða á einhvern veitingastað um morguninn, borðuðum þ.á.m. heila!! Vinur okkar pantaði einhvern mat sem við áttum að smakka án þess að segja okkur hvað það væri. Heilinn smakkaðist ágætlega. Svo hittum við sjálfboðaliða stelpurnar og Marco frá Siijuve og vorum aðeins með þeim, sem var rosa fínt!
Á laugardaginn var svo partý ársins. Var á einhverskonar sveitabæ með sundlaug og allskonar. Þar voru flestar sjálfboðaliða stelpurnar frá Puebla og fullt af starfsmönnum Siijuve og fólki sem við þekkjum. Þar vorum við til svona 2-3 eftir hádegi á sunnudaginn. Við Emma þurftum að fresta rútunni heim um einn og hálfan tíma þar sem við gátum ekki fengið leigubíl frá húsinu hans Panda, allt svo upptekið! Loksins komumst við á leiðarenda til Guadalajara, skiptum um rútu og vorum komnar alla leið heim um 8 á mánudagsmorgni. Ég fór heim, skipti um föt, borðaði og fór í vinnuna. Ég hef aldrei verið jafn þreytt eins og þann dag.




Alla síðustu viku var ég ein heima og er það reyndar ennþá. Foreldrarnir eru í Veracruz að vinna. Ég borðaði með vinum mínum flest kvöld í síðustu viku því ég nennti ekki að elda! Það var frí í vinnunni minni á síðasta miðvikudag og ég nýtti tækifærið og fór í Pole fitness tíma með Jazmin vinkonu minni. Þar vorum við í rúmlega 2 klukkutíma og ég skemmti mér rosalega vel, þetta var mjög erfitt en rosa skemmtilegt. Ég var alveg aum af harðsperrum daginn eftir!!

Á föstudagskvöldið keyrðum við Emma og Jazmin til Guadalajara þar sem við hittum Chris og Omar. Fórum með þeim og 3 vinum þeirra út og skemmtum okkur til klukkan 4 um morguninn. Djammið í Guadalajara er þúsund sinnum skemmtilegra en hér í Ocotlán enda er það næst stærsta borg í Mexico. Það tekur einn og hálfan tíma að keyra frá einum enda borgarinnar í hinn endan. Á leiðinni heim til Chris vorum við stoppuð af löggunni, vorum að elta vin hans Omars því við rötuðum ekki og vorum að keyra aðeins of hratt. Í bílnum voru ég, Emma, Jazmin, Chris og Itan herbergisfélaginn hans Chris. Löggan tók strákana útúr bílnum og leitaði á þeim og talaði helling við Jazmin þar sem hún var að keyra en við sluppum við sekt og allt því strákarnir eru atvinnu fótboltamenn. Klíkan hérna er ótrúleg og löggan svo rosalega spillt. En sem betur fer fór allt vel :)

Á laugardaginn fórum við á Pizza Hut um hádegi og lágum í leti til svona 3. Jazmin fór þá heim og við fórum með Omar að leita af myndavél fyrir Emmu þar sem myndavélinni hennar var stolið í Puebla á síðustu helgi. Um kvöldið fórum við svo á barinn þar sem Omar vinnur sem er með live rock tónlist. Ég fýlaði mig í botn á þeim stað, algjörlega minn stíll. Fórum heim um 2 leytið því ég var orðin rosalega slöpp. Í gær láum við í leti eiginlega allan daginn. Strákarnir ætluðu að keyra okkur til Ocotlán í gærkvöldi og þegar við vorum alveg að verða komin út fyrir borgina bilaði bíllinn hans Omar og við Emma urðum að taka strætóinn. Í morgun var ég ennþá rosalega slöpp þannig ég fór ekki í vinnu, ætla að hvíla mig í dag og mæta svo fersk í vinnu á morgun :)





Í næstu viku eru komnir 2 mánuðir síðan ég flutti hingað út. Mikið er tíminn fljótur að líða. Þessir tveir mánuðir hafa verið alveg æðislegir, hef lært svo mikið og hlakka til að eyða næstu 10 mánuðum hér í þessu frábæra landi :)