sunnudagur, 20. október 2013

2 mánuðir!!

Í dag eru tveir mánuðir síðan ferðalagið hófst en mér finnst eins og það hafi gerst í gær. Þessi vika og helgi voru mjög róleg, gerði voða lítið. Er ennþá ein heima en hóstforeldrar mínir eru væntanleg heim á morgun.

Þar sem ég hef aldrei kunnað að liggja í leti, hvað þá þegar ég er veik bauð ég Emmu og Chris í pönnsur á mánudaginn. Emma kom við á leiðinni til mín og keypti Nutella og ávexti og við borðuðum með bestu lyst. Pönnsurnar hjá mér verða alltaf betri og betri!

Á þriðjudag og miðvikudag gerði ég ekki mikið annað en að vinna, fór snemma að sofa bæði kvöldin því ég hef verið rosalega slöpp í bakinu. Á fimmtudaginn strax eftir vinnu fór ég að tala við yoga kennara sem kennir rétt fyrir utan miðbæinn, c.a 25 mínútur fyrir mig að labba úr vinnu. Mér leist rosalega vel á hana og staðinn og ætla að byrja á morgun, hlakka mikið til!



Á föstudaginn strax eftir vinnu labbaði ég á aðal rútu stöðina hér í bænum og tók næstu rútu til Guadalajara. Chris sótti mig þegar ég var komin og við tókum 2 strætóa og eina lest til að komast þangað sem hann á heima. Hann fær vonandi bíl fljótlega og þá verður auðveldara að komast á milli en það er kostur hversu ódýrt það er að ferðast með almenningssamgöngum. Á föstudaginn fórum við á kaffihúsabar að horfa á fótboltaleik með herbergisfélaganum hans. Fórum heim strax eftir leikinn. Í gær fórum við á mercado del mar sem er risa svæði með bara sjávarréttar veitingastöðum og fiskibúðum. Lyktin var svo góð og við borðuðum ostrur og svo tostadas með krabbasalati og svo með marlin. Maturinn var æðislegur. Eftir matinn fórum við heim og löbbuðum aðeins um hverfið hjá strákunum áður en ég fór aftur til Ocotlán um kvöldið. Ég ferðaðist ein frá húsinu hans Chris að aðal rútu stöðinni, var voða stolt, týndist ekkert og komst alein á leiðarenda!

Guadalajara

Hef mikið verið að skoða þessa staði sem Heiða benti mér á. Þetta eru allskonar staðin sem ekkert endilega eru týbískir ferðamanna staðir en allir mjög fallegir.
http://www.pueblosmexico.com.mx/pueblos_magicos.php
Við ætlum að byrja á þeim stöðum sem eru næst okkur og þar má nefna Tequila og Tapalpa. Ætlum jafnvel að heimsækja annan staðinn á næstu helgi.


Þessi varð að fylgja, þetta er Jesus Alexander að borða jógúrt í skólanum, gleymdi skeiðinni heima en reddaði sér bara!

1 ummæli:

  1. Alltaf sama stuðið hjá þér. Verður gott að komast í jóga.
    Jesus er krútt.
    Farðu varlega.
    knús, ma.

    SvaraEyða