3. október, á fimmtudeginum fyrir rúmri viku strax eftir vinnu tókum við Emma rútuna til Guadalajara þar sem Chris og Omar sóttu okkur. Við vorum í c.a 3 tímar þar með þeim, fengum okkur að borða, spiluðum pool og kíktum á cumbia bar. Kvöldið var rosalega skemmtilegt. Um miðnætti tókum við svo rútuna frá Guadalajara til Puebla sem eru sirka 8 klukkutímar. Í Puebla gistum við hjá vini okkar sem var að halda uppá afmælið sitt. Á föstudaginn fórum við að borða á einhvern veitingastað um morguninn, borðuðum þ.á.m. heila!! Vinur okkar pantaði einhvern mat sem við áttum að smakka án þess að segja okkur hvað það væri. Heilinn smakkaðist ágætlega. Svo hittum við sjálfboðaliða stelpurnar og Marco frá Siijuve og vorum aðeins með þeim, sem var rosa fínt!

Á laugardaginn var svo partý ársins. Var á einhverskonar sveitabæ með sundlaug og allskonar. Þar voru flestar sjálfboðaliða stelpurnar frá Puebla og fullt af starfsmönnum Siijuve og fólki sem við þekkjum. Þar vorum við til svona 2-3 eftir hádegi á sunnudaginn. Við Emma þurftum að fresta rútunni heim um einn og hálfan tíma þar sem við gátum ekki fengið leigubíl frá húsinu hans Panda, allt svo upptekið! Loksins komumst við á leiðarenda til Guadalajara, skiptum um rútu og vorum komnar alla leið heim um 8 á mánudagsmorgni. Ég fór heim, skipti um föt, borðaði og fór í vinnuna. Ég hef aldrei verið jafn þreytt eins og þann dag.



Alla síðustu viku var ég ein heima og er það reyndar ennþá. Foreldrarnir eru í Veracruz að vinna. Ég borðaði með vinum mínum flest kvöld í síðustu viku því ég nennti ekki að elda! Það var frí í vinnunni minni á síðasta miðvikudag og ég nýtti tækifærið og fór í Pole fitness tíma með Jazmin vinkonu minni. Þar vorum við í rúmlega 2 klukkutíma og ég skemmti mér rosalega vel, þetta var mjög erfitt en rosa skemmtilegt. Ég var alveg aum af harðsperrum daginn eftir!!

Á föstudagskvöldið keyrðum við Emma og Jazmin til Guadalajara þar sem við hittum Chris og Omar. Fórum með þeim og 3 vinum þeirra út og skemmtum okkur til klukkan 4 um morguninn. Djammið í Guadalajara er þúsund sinnum skemmtilegra en hér í Ocotlán enda er það næst stærsta borg í Mexico. Það tekur einn og hálfan tíma að keyra frá einum enda borgarinnar í hinn endan. Á leiðinni heim til Chris vorum við stoppuð af löggunni, vorum að elta vin hans Omars því við rötuðum ekki og vorum að keyra aðeins of hratt. Í bílnum voru ég, Emma, Jazmin, Chris og Itan herbergisfélaginn hans Chris. Löggan tók strákana útúr bílnum og leitaði á þeim og talaði helling við Jazmin þar sem hún var að keyra en við sluppum við sekt og allt því strákarnir eru atvinnu fótboltamenn. Klíkan hérna er ótrúleg og löggan svo rosalega spillt. En sem betur fer fór allt vel :)

Á laugardaginn fórum við á Pizza Hut um hádegi og lágum í leti til svona 3. Jazmin fór þá heim og við fórum með Omar að leita af myndavél fyrir Emmu þar sem myndavélinni hennar var stolið í Puebla á síðustu helgi. Um kvöldið fórum við svo á barinn þar sem Omar vinnur sem er með live rock tónlist. Ég fýlaði mig í botn á þeim stað, algjörlega minn stíll. Fórum heim um 2 leytið því ég var orðin rosalega slöpp. Í gær láum við í leti eiginlega allan daginn. Strákarnir ætluðu að keyra okkur til Ocotlán í gærkvöldi og þegar við vorum alveg að verða komin út fyrir borgina bilaði bíllinn hans Omar og við Emma urðum að taka strætóinn. Í morgun var ég ennþá rosalega slöpp þannig ég fór ekki í vinnu, ætla að hvíla mig í dag og mæta svo fersk í vinnu á morgun :)
Í næstu viku eru komnir 2 mánuðir síðan ég flutti hingað út. Mikið er tíminn fljótur að líða. Þessir tveir mánuðir hafa verið alveg æðislegir, hef lært svo mikið og hlakka til að eyða næstu 10 mánuðum hér í þessu frábæra landi :)
Jej.. loksins nýtt blogg, frábært að "heyra" hvað það er gaman hjá þér.
SvaraEyðamilljón kossar frá Ísó.
mamma.