sunnudagur, 29. september 2013

Fiestas

Á þessum tíma á hverju ári eru fiestas hér í Ocotlán. Frá 20. september - 2.október er bara stanslaust djamm, á hverju kvöldi. Hér eru básar með mat, drykkjum, leiktæki, lifandi tónlist og hitt og þetta. Ég hef farið mikið niður í bæ síðustu vikuna og er búin að skemmta mér rosalega vel. 
Á síðustu helgi byrjaði fjörið með risa stórri, 3 klukkutíma langri skrúðgöngu í miðbænum. Ég fór með Emmu, Kareninu og vinum og fjölskyldu Kareninu að horfa á og eftir það fórum við öll heim til Karen. Þar borðuðum við saman og ætluðum þaðan niður í bæ, en í staðin leigðu þau hljómsveit og við vorum bara með okkar eigið ball á götunni fyrir utan húsið hennar. Hljómsveitin spilaði í 2 klukkutíma, af þessum 2 tímum ringdi í rúman klukkutíma. Rigningin hér er ekkert venjuleg líka, við vorum öll rennandi blaut og göturnar voru á floti, en þetta var eitt skemmtilegasta kvöld hingað til. Eftir hljómsveitina og allt það fór ég með Emmu og Jazmin vinkonu okkar niður í bæ þar sem við dönsuðum til klukkan 3. 

https://vimeo.com/75162864 - Hér er myndband sem ég setti inn af okkur að dansa.


Laugardagurinn var svipaður, við Emma borðuðum saman hádegismat í miðbænum á voða kósý veitingastað, hún kom með mér heim og við græjuðum okkur fyrir kvöldið. Karen var búin að taka frá borð á einum af stöðunum niðrí bæ, einu terraza svokölluðu og þar sátum við í dálitla stund með henni og vinkonum hennar. Jazmin kom svo aðeins seinna og við fórum með henni og vini hennar að dansa, sem var æði. Klukkan hálf 1 það kvöld fékk Emma skilaboð um að koma heim því klukkan væri orðin alltof margt. Við vorum ekki alveg sáttar með það þar sem kvöldið var bara rétt að byrja en við létum okkur hafa það. Á sunnudaginn borðaði ég með fjölskyldunni og um kvöldið fór ég með Jazmin að sjá flugeldana og svona. Það er sem sagt búið að vera flugeldasýning á hverju kvöldi í 9 daga og eru enn nokkrir dagar eftir!
Vikan var voða róleg, á miðvikudaginn tók ég þátt í einhverri kröfugöngu, sem ég má víst ekki. Ég vissi í raun ekki hvað ég væri að gera því ég skyldi ekki hvað kennararnir væru að segja, fór bara með þeim. Kennararnir eru lítið menntaðir hérna og vilja ekki mennta sig meira, þess vegna voru þeir að mótmæla. Ég frétti það eftir kröfugönguna!


Á föstudagskvöldið fór ég með Jazmin og Emmu niður í bæ og við dönsuðum til klukkan að verða hálf 4. Einnig voru vinir okkar Chris og Gain með. Eftir djammið fórum við og fengum okkur tacos eins og alvöru mexíkanar og svo heim. Emma gisti hjá mér það kvöld því hún vildi ekki þurfa að fara snemma heim. 


Gærdagurinn var rosalega fínn. Við Emma vöknuðum uppúr 10 og borðuðum morgunmat hér heima, svo kom hóstpabbi hennar og sótti okkur og við fórum í sundlaugina hjá húsinu þeirra og sátum þar með kokteil og svona huggulegheit. Þrátt fyrir að hafa notað sólarvörn skaðbrann ég og er eins og jarðaber. Um 3 leytið fórum við svo í bæinn, ég keypti mér skó og skartgripi. Ég var búin að skipuleggja óvæntan afmælismat fyrir Emmu ásamt 2 öðrum og fór með Emmu á San Tomas veitingastaðinn hér þar sem vinir okkar og fjölskyldan hennar biðu okkar með kökur, blöðrur og pakka. Hún var heldur betur hissa og við áttum góða stund saman. Um kvöldið fórum við svo niður í bæ með Jazmin og dönsuðu til 4.

Í dag um 2 leytið fórum við til Jamay sem er rétt hjá og fórum í svokallað tirolesa. Það var sjúklega skemmtilegt, hátt og útsýnið mjög fallegt.


1 ummæli:

  1. Bestu kveðjur frá okkur. Greinilega gaman hjá þér. Kveðja, Ásdís og Siggi frændi :-)

    SvaraEyða