Mexico er eins og
við var að búast algjör andstæða við Ísland. Ég læri eitthvað nýtt á hverjum
degi og er alltaf að sjá nýja hluti.
- Hér
er mjög algengt að sjá heilu fjölskyldurnar saman á vespu eða einhverskonar
rafmagns tæki. Þá er ég að tala um 4-5 manneskjur, ungabörn og uppúr. Það er
mjög sjaldgæft að einhver þeirra sé með hjálm. Umferðin útá fyrir sig er kreisí, það er líka mjög sjaldgæft að fólk hér sé með
bílpróf, flestir keyra bara samt.
- Í Mexico eru mikið af ferskum ávöxtum og eru ávextirnir hér bestu sem ég hef smakkað. En áður en maður borðar ávöxtinn þarf að þrífa hann, ekki bara skola heldur þrífa með sápu.
- Klósettpappírinn má ekki fara í klósettið heldur verður hann að fara í ruslið við hliðina á klósettinu.
- Löggurnar keyra allar um með ljósin á, alltaf. Ljósin eru merki um að löggan sé á vaktinni, ekki að hún þurfi að flýta sér eitthvað. Lögreglan hér er líka svo svakalega spillt, hér má allt. Eins og ég minntist á með vespurnar, það er ólöglegt en lögreglan stoppar engan.
- Strætóinn hefur enga tímatöflu eða neitt svoleiðis. Hann kemur bara þegar hann kemur og maður þarf að borga í hvert skipti sem maður notar strætóinn, það er ekki hægt að kaupa kort eða neitt svoleiðis. Hver ferð kostar 5.5 pesos eða um 50kr. Svo eru engir sérstakir staðir þar sem strætó stoppar, helst á götuhornum en þú getur tekið hann hvar sem er.
- Mér finnst líka rosalega merkilegt að krakkarnir í skólanum mínum, strákar og stelpur koma alltaf með rosalega fínt hár í skólann. Strákarnir allir stíf gelaðir og stelpurnar með fínar fléttur eða aðra greiðslu. Einnig eru sumir krakkar með litað hár.
- Í Mexico ganga allir á skónum inni, ég er ennþá að venjast því þar sem mér finnst rosalega óþæginlegt að vera í skóm, heima er ég alltaf á tásunum, meiri að segja í ræktinni.
- Mér finnst reglurnar hér um kærustupör það allra fyndnasta. Strákar mega í fæstum tilfellum koma inní hús hjá stelpum, ef þeir eru svo heppnir að mega það þá mega þeir einungis koma í forstofuna eða jafnvel stofuna ef þeir hafa verið lengi inní fjölskyldunni. Einnig er mjög algengt að krakkar búi með foreldrum sínum rosalega lengi. Ég á 28 ára vin sem býr hjá foreldrum sínum.
- Þegar við förum mörg saman á bar eða í partý borga allir jafn mikið af reikningnum. Sumir drekka kannski 10 glös og aðrir 2 en reikningnum er skipt jafnt á milli allra. Það er sem betur fer mjög ódýrt hérna.
- Sem dæmi um hversu ódýrt er hérna þá kostar bensínlíterinn c.a 112 isk. Á götunni eru tacos seldar í stykkjatali og eru frekar litlar, en þær kosta svona 5-7 pesos sem eru um 50kr.
- En allt verður að vera ódýrt hér því launin eru svakalega lág. Vinur minn er kennari og vinnur frá hálf 7 á morgnanna til c.a 2. Hann fær á mánuði um 90.000isk, og hann þurfti að hafa fyrir því að fá þessi laun, honum var boðið til að byrja með c.a 70.000isk á mánuði.
- Maturinn er að sjálfsögðu allt öðruvísi, það sem við köllum mexicanskan mat heima á Íslandi er langt frá því að vera eins og alvöru mexicanskur matur! Tortillurnar eru mjög litlar, allar úr maís. Fæst heimili eiga bakaraofn og allt er steikt á pönnu eða hitað í öbbanum. Sakna þess mikið að baka. Kökurnar hér eru ekki mjög góðar og það er rosalega lítið úrval af súkkulaði hér!

Mexico er frábært land og mér finnst rosalega gott að búa hér. Á Íslandi er
ég voða frjáls en eins og við var að búast er margt frekar strangt hérna,
útivistareglur og reglur um hvern maður má hitta og hvern ekki. Svo skiptir
líka máli hvaða eftirnafn fólk hefur, rosa mikil stéttaskipting og þú lætur
ekki sjá þig með hverjum sem er!
Gaman að lesa þetta Björk mín , greinilega allt , allt öðruvísi en þú hefur vanist :) Góðar kveðjur.
SvaraEyðaKv. Alma Bj.
Eg held að þú verðir góður pislahöfundur áður en langt um líður, kveðja.
SvaraEyða