Á föstudagsmorgun
fór ég í vinnu eins og venjulega en dagurinn var aðeins öðruvísi. Krakkarnir
mættu margir fínir í einhversskonar búning og aðrir bara með fánalitina á sér.
Við komum okkur öll saman í portið fyrir utan allar kennslustofurnar og krakkarnir
sátu í risa hring. Við kennararnir afhendu fána og einhverjir settu fánalitina
á kinnarnar á okkur öllum því það var mexíkönsk veisla! Á sunnudaginn var
nefnilega þjóðhátíðardagurinn þannig við héldum uppá hann í skólanum á
föstudaginn. Við sungum saman helling af lögum (þau, ég er ennþá að læra) og
það var dansað aðeins. Þeir nemendur sem voru í búning voru með lítið leikrit
ásamt kennaranum þeirra. Svo þegar því lauk fórum við í stofurnar okkar og
allir kennarar voru með eitthvað Mexicanskt fyrir krakkana, þau teiknuðu fánann
og lituðu eða e-ð þess háttar. Að sjálfsögðu var svo borðaður alvöru
mexicanskur matur og sungið meira.
Ég hljóp heim
eftir vinnu, borðaði snögglega hádegismat og Brayan vinur minn sótti mig. Hann
fór með mig á strætóstöðina þar sem ég fyrsta almennilega ferðalagið mitt
hófst! Ég fór með strætó til Guadalajara sem tekur um einn og hálfan tíma. Þar
beið ég í c.a hálftíma og tók strætó þaðan til Guanajuato með stoppi í Leon. Sú
ferð tók c.a 5 tíma. Coni, systir mín beið eftir mér í Guanajuato og við tókum
strætó heim til hennar en hún býr alveg í miðbænum. Ég skilaði farangrinum
mínum og við fórum út. Við borðuðum saman mjög góðan kvöldmat og röltuðum um
borgina sem er ein sú fallegasta sem ég hef séð!
Snemma morguninn
eftir fórum við með strætó til Leon þar sem vinur hennar býr. Við byrjuðum á
því að fara á skó outlet en Leon er þekkt fyrir ódýra skó. Þar eru 2 götur með
eingöngu skóbúðum og allt á mega útsölu! Ég verslaði þar 3 pör af skóm og
íþróttaföt. Við vorum svo sóttar þangað af Jose, vini hennar Coni og fórum heim
til hans. Mamma hans var búin að elda fyrir okkur alvöru mexíkóskan hádegismat
og við borðuðum með fjölskyldunni hans. Eftir matinn tókum við rúnt um miðbæ
Leon og hann sýndi okkur helstu staðina þar. Ég er rosalega lélegur túristi og
hef aldrei gaman að svona fínum byggingum og svoleiðis. Við enduðum rúntinn í
molli þar sem við Coni versluðum okkur föt fyrir kvöldið.
Á
laugardagskvöldið fórum við svo út á lífið í Leon með Jose og vinkonu hans. Við
vorum búin að panta borð á 2 stöðum en þeir voru samt báðir fullir og við
komumst ekki að. Borguðum 70 pesos inn á annan klúbb sem þykir mjög mikið hér,
er tæplega 700kr. Kvöldið var mjög fínt, nenntum ekki að hanga inná þessum
klúbb og fórum heim til vinkonu Jose og horfðum á box keppni. Áður en við fórum
heim fórum við og borðuðum tacos sem voru rosa góðar.
Á
sunnudagsmorguninn borðuðum við morgunmat heima hjá Jose og svo fóru við Coni,
Jose og David bróðir hans aftur til Guanajuato, enda stór dagur! Við fórum
beint á McDonalds (LOKSINS) og þaðan heim til Coni. Við Coni lögðum okkur
aðeins og fórum svo að hafa okkur til. Um kvöldið fórum við svo út og hittum
vini Coni. Byrjuðum á því að fá okkur pizzu og svo á bar. Sátum þar í smá stund
og ég spjallaði við einhverja vini hennar Coni. Þaðan splundraðist hópurinn
aðeins og við fórum 6 saman á torgið þar sem hátíðin var. Þar var dansað og
sungið og öskrað og allir voða ánægðir. VIVA MEXICO!! Við vorum þar í soldinn
tíma og ég keypti mér hálsmen með fánalitunum til að passa inní hópinn! Eftir
það fórum við á annan bar, það var voða erfitt að komast að einhversstaðar þar
sem bærinn var stút fullur af fólki. Við enduðum kvöldið á salsa bar sem var
algjört æði!! Margir rosalega flinkir dansarar, ég var voða feimin við að dansa
en lét mig þó hafa það. Fyrst var okkur systrum boðið uppí dans af 2 vinum, mér
var kennt aðeins að dansa salsa sem var æði. Aðeins seinna um kvöldið var mér
svo boðið aftur upp í dans sem ég þáði líka. Sá gaur talaði fína ensku þannig
við töluðum allt í bland, ensku og spænsku. Kvöldið var æðislegt og ég hlakka
til að fara aftur til Guanajuato. Á mánudaginn elduðum við Coni svo morgunmat
og fórum á strætóstöðina þar sem ég þurfti að fara heim. Ég var komin heim um 9
leytið í gærkvöldi og mætti í vinnu í gærmorgun. Vinnudagurinn var fínn, mér
finnst miklu skemmtilegra að vinna eftir hádegi, þar er ég alltaf með sama
hópinn og er farin að þekkja krakkana ágætlega. Eftir vinnu fór ég í búðina með
strætó og keypti mér aðeins hollara mat til að borða. Hér er ekki til
hrökkbrauð eða neitt svoleiðis, rosalega erfitt að finna hollan mat sem er
alveg glatað. Ég tók strætó heim líka en hann hætti að keyra þegar ég var komin
hálfa leið heim og ég þurfti að labba í miðbæinn og þaðan heim. Vissi eiginlega
ekki hvar ég var en strætó bílstjórinn sagði mér hvert ég ætti að labba. Ég
komst heil heim og hafði bara gott af göngutúrnum!
Ég er að vinna í
öðru bloggi þar sem ég ætla að segja frá öðruvísi hefðum í Mexico og því sem ég
hef séð sem er allt öðruvísi en heima :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli