Nú þegar fyrsta
vinnuvikan er búin og önnur vikan að byrja langar mig að segja ykkur aðeins frá
vinnunni sjálfri. Ég labba í vinnuna á morgnanna sem tekur um 10 mínútur.
Klukkan 9 er börnunum hleypt inn á lóðina og eru dyrnar opnar aðeins í 10 mínútur.
Á mánudögum koma öll börnin ásamt kennurum saman á skólalóðinni og syngja saman
mexíkóska þjóðsönginn og fleiri lög. Á morgnanna er ég í nýrri kennslustofu á
hverjum degi en þá eru hóparnir 7 eða 8. Kennararnir eru rosalega fínir, mín
uppáhalds var sú sem ég var hjá á föstudaginn. Hún spjallaði helling við mig og
ég sagði krökkunum frá Íslandi á þeirri litlu spænsku sem ég kann. Ég sá að
einn strákurinn var með Latabæjar tösku og sagði þeim að Latibær væri frá
Íslandi. Svo sagði ég þeim að það væri rosalega mikill snjór á veturnar og þeim
langar öllum að heimsækja Ísland. Morguntörnin er frá 9-12. Frá 9 til c.a
korter í 11 erum við að lita, eða föndra eða eitthvað svoleiðis og svo er
matur. Börnin koma með pening í skólann á hverjum morgni ef þau vilja borða og
gera það upp við kennarana sína. Maturinn er voða mexíkóskur, tortillur, ostur
og sósa með öllu en hann er góður. Svo þegar maturinn er búinn fara þau út að
leika sér í svona hálftíma. Klukkan c.a hálf 12 er farið aftur í stofurnar,
lesin bók eða verkefnin frá morgninum kláruð og beðið eftir foreldrunum.
Klukkan 12:00 er svo tekið úr lás og foreldrarnir mega koma inn á lóðina til að
sækja börnin sín.

Eftir
morguntörnina fer ég svo heim í 2 klukkutíma, nýti tímann oft til að heyra í
famelíunni heima á skype og borða hádegismat í rólegheitunum. Klukkan 14:30
hefst svo seinni törnin en það er allt öðruvísi. Það er annar skólastjóri eftir
hádegi, aðrir kennarar líka. Eftir hádegi erum við bara með 3 hópa og ég er
alltaf í sömu stofunni. Flestir krakkarnir eftir hádegi þurfa einhverja sér
aðstoð og eru þau þess vegna mun færri. Stelpan sem ég er mest með eftir hádegi
heitir Brittany. Hún getur labbað en hún getur ekkert tjáð sig. Hún virðist
skilja það sem maður segir en sýnir sjaldan svipbrigði. Hún vill rosalega mikið
láta halda á sér og þá lyftir hún alltaf öðrum fætinum og nuddar honum við
mann. Einnig eftir hádegi eru 3 stelpur með downs og ein sem er alveg
heyrnalaus.
Krakkarnir eru
æði, mér finnst þetta mjög skemmtilegur aldur, 4-5 ára. Þessi eldri kölluðu mig
fyrst alltaf Juliu en það er sjálfboðaliðinn sem var hér í fyrra. Við erum sennilega einu ljóshærðu
stelpurnar sem þau hafa séð á ævi sinni þannig það er ekkert skrýtið að þau
ruglist! Í skólanum er ég “maestra Björk” en maestra þýðir kennari. Mitt
hlutverk í vinnunni er að aðstoða kennarana, í dag var ég t.d að fara yfir
heimavinnu og græja næstu heimavinnuna. Svo hjálpa ég krökkunum að föndra, tek
þátt í öllum leikjum og tónlistinni. Er ennþá að reyna að læra öll þessi
spænsku lög en þau syngja rosalega mikið.
Mér finnst
rosalega gaman í vinnunni þrátt fyrir að fyrstu vikurnar séu frekar erfiðar
útaf spænskunni. Ég skil ekki mikið en krakkarnir eru duglegir að nota
einhverskonar tákn. Þetta kemur, hraðar en ég átti von á meiri að segja :)
Fallega stóra kirkjan í Ocotlán
Bara nokkur moskítóbit, þau verða bara fleiri og fleiri!
Annars hef ég
ekki mikið meira að segja. Helgin var æði. Ég fór út að borða með Emmu á
föstudagskvöldið og við röltuðum um bæinn aðeins. Á laugardaginn hitti ég líka
Emmu og við kíktum í bæinn. Um kvöldið fór ég svo í brúðkaup með vini mínum,
var rosalega fallegt og skemmtilegt! Á sunnudaginn fór ég með famelíunni til
Ajijic sem er bær við Chapala vatn. Borðuðum á frekar fínum veitingastað og ég
labbaði við vatnið. Um kvöldið hjálpaði ég svo Brayan vini mínum með ensku
námið sitt :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli