fimmtudagur, 24. október 2013

Fiesta í skólanum :)

Í dag er dagur Sameinuðu þjóðanna og var hann haldinn hátíðlegur í skólanum mínum. Allir dagar sem eru eitthvað eru haldnir hátíðlegir í Mexico enda nýta þau hvert tilefni fyrir fiesta!

Hér er morguntörnin..


 Fínu börnin mín fengu öll eitt land og áttu að klæða sig eftir því.

Allir að syngja saman
Viljum öll heimsfrið!
Ég, kennarinn og börnin! Vildi svo skemmtilega til að ég var akkúrat með þennan hóp í morgun, var alsæl :) Hinir hóparnir voru bara að horfa á. Eftir þetta fórum við svo að læra og dagurinn hélt áfram eins og venjulega.


 Svo eftir hádegi var bara fiesta, allir krakkarnir tóku þátt, rosa skemmtilegt. Erum búin að vera að æfa lengi og allir foreldrarnir komu að horfa á og svona!
Hér er sett upp sagan af Christopher Columbus!

Þessi dönsuðu

Jorge Eduardo

Börnin úr mínum bekk að leika "Naranja dulces" 

Dafne og Nadia, báðar með Downs, stóðu sig svo vel og voru svo fínar :)

Tania Maria og Mia Judith, úr bekknum mínum!

Ég, Eloisa og bekkurinn okkar! Brittany var ekki með í dag, stelpan sem ég er mest með.

Fína Dafne!!

Svona dagar eru svo rosalega skemmtilegir, Mexicanar kunna þetta alveg! Ég tók yfir 100 myndir, á eftir að fara í gegnum þær betur, átti mjög erfitt með að velja bara nokkrar til að setja hingað inn.

Svo í kvöld liggur leiðin aftur til Guadalajara, í fyrramálið ætla ég að fara að horfa á leikinn hjá Chris, svo kemur Emma þegar hún er búin að vinna og við ætlum að versla aðeins. Á laugardaginn er stefnan sett á Tequila, hlakka mikið til :)

5 ummæli:

  1. Gaman að sjá svona margar myndir :)

    SvaraEyða
  2. Æðislegar myndir! :)
    Ótrúlega gaman að lesa í gegnum bloggið þitt, hljómar eins og algjört ævintýri. Enda var ekki við öðru að búast!
    Hlakka til að lesa meira :D
    Kveðja,
    Arnheiður

    SvaraEyða
  3. já þeir kunna þetta greinilega mexicanarnir.
    Góða skemmtun á helginni og farðu varlega.
    ma

    SvaraEyða
  4. Alltaf jafn gaman að lesa bloggið frá þér Björk mín og gaman að sjá myndirnar.
    Kossar og kbús frá Ísafirði .
    Kv.Alma Bj.

    SvaraEyða
  5. Frábært :) Svo gaman að lesa þetta og vita að vel gengur
    Kær kveðja
    Kristín hjá AUS

    SvaraEyða