föstudagur, 30. ágúst 2013

Fyrstu dagarnir í Ocotlán

Ocotlán er fínn staður, frekar lítill á þeirra mælikvarða en miðað við Ísafjörð, er þetta frekar stórt. Ég er rosalega ánægð með staðsetninguna mína en Emma, vinkona mín býr frekar útúr bænum og var t.d í dag 50 mínútur að labba þangað sem ég var 10 mínútur að labba.

Síðustu dagar hafa verið mjög rólegir, spænsku námskeið seinni partinn og chill fyrri partinn. Ég hef aðeins rölt um hverfið í frítímanum og mentorinn minn, Luis er búinn að kenna mér að taka strætó í háskólann þar sem spænsku námskeiðið er. Spænsku tíminn í gær var 3klst en við tókum okkur smá pásu til að skoða háskólann. Svo eftir námskeiðið í gær fór ég út að borða með fjölskyldunni minni, mömmunni, pabbanum og ömmunni sem er í heimsókn. Við fórum á ekta mexíkóskan stað sem er staðsettur í bílskúrnum hjá eigendum, voða huggulegt. Hér kaupiru matinn í stykkjatali, 1 taco/quesadilla eða þess háttar kostaði um 5 pesos en það eru um 44isk. Mamman pantaði fyrir mig eitt af öllu, taco, quesadilla, enchillada og eitthvað eitt í viðbót sem ég man ekki hvað var. Máltíðin mín kostaði semsagt um 200isk! Maturinn var rosalega góður eins og flest allur matur hér.


Í morgun vaknaði ég svo hálf 9, græjaði mig og borðaði morgunmat og labbaði svo í fylgd mömmunar í barnaskóla hérna rétt hjá. Spænsku kennarinn minn, Sergio kennir í þeim skóla á morgnanna og vildi endilega sýna okkur hann. Þarna voru börn allt frá svona 5-13 ára, jafnvel aðeins eldri. Þetta var blanda af kinder, primary og secondary. Krakkarnir voru að æfa fyrir skrúðgöngu sem verður um miðjan september og við Emma löbbuðum með þeim, rosa gaman. Svo fegnum við að sitja landafræði- og sögutíma. Segio kenndi sögutímann en þar sem Emma er með háskólagráðu í landafræði vildi hún endilega fá að upplifa spænskan landafræðitíma. 

Þegar ég kom heim var amman búin að elda fisk og spagettí og gera salat og ég borðaði hádegismat (hér er hádegismaturinn alltaf uppúr 2). 


Spænskan gengur mjög vel hjá mér, ég skil orðið ágætlega mikið en kann ekki eins vel að svara. Í skólanum í dag leið mér eins og ég væri eitthvað fræg því allir krakkarnir vildu spyrja okkur endalausar spurningar, hvað krakkar gera á Íslandi/Finnlandi, hvort við hlustum á One Direction, hvað við værum gamlar, afhverju við værum í Ocotlán og allskonar. Við vorum algjörlega miðpunktur athyglinnar í frímínútum sem var frekar vandræðilegt. 

Ég fer í 4 spænsku tímann í dag og á svo 2 vikur eftir. Í kvöld kemur svo "systir" mín í helgarfrí frá háskólanum og við ætlum út á bar með Siijuve hópnum, Emmu og fleiri vinum þeirra. Ég hlakka mikið til að kynnast krökkum héðan og æfa mig meira í spænskunni :) Á morgun ætlum við "fjölskyldan" svo að fara til Guadalajara í smá dagsferð, hlakka rosalega til að skoða borgina og versla aðeins!!



þriðjudagur, 27. ágúst 2013

Hverfið mitt

Nokkrar myndir frá hverfinu mínu og heimili :)

Hægt og rólega að koma mér fyrir í nýja herberginu.



Gatan við húsið mitt.



Húsið mitt

Séð frá húsinu

Heimilishundurinn Borro :)

Í kvöld byrja ég svo á spænsku námskeiði ásamt Emmu, finnsku vinkonu minni. Námskeiðið verður alla virka daga næstu 2 vikurnar. Hlakka mikið til, er aðeins farin að skilja fjölskylduna þar sem þau tala meira og minna bara spænsku við mig, eru alltaf að kenna mér eitthvað nýtt sem mér finnst frábært!

mánudagur, 26. ágúst 2013

Komin heim!

Eftir frábæra helgi með starfsmönnum Siijuve, sem eru samtökin hér úti og hinum sjálfboðaliðunum er ég loksins komin til fjölskyldunnar minnar.
Campið var æði, fengum að smakka allskonar týbískan mexíkóskan mat. Þau borða rosalega mikið af sætum mat, brauðið er sykrað og svo eru baunir með öllu! Maturinn var yfir höfuð góður. Hér er hádegismaturinn stærsta máltíðin, allavega í campinu fengum við 4 rétta hádegismat og bara e-ð létt í kvöldmat. Veðrið var geggjað á daginn, sól og blíða en það ringdi öll kvöldin. Fyrsta kvöldið var mesta rigningin, og ég hef aldrei séð annað eins. Á daginn þegar það var frítími sátum við við sundlaugina og chilluðum. Ég brann örlítið á öxlunum, annars bara tan!

Á hverju kvöldi var djamm, mega djamm og mexíkanarnir alltaf síðastir heim! Það sem það geta drukkið!! En það var alltaf rosa gaman, fyrstu tvö kvöldin fór ég heim rúmlega miðnætti en síðasta kvöldið ekki fyrr en rúmlega 5, það var líka síðasta kvöldið okkar allra saman. Við lærðum aðeins að dansa salsa sem var æði og ég ætla pottþétt að læra það hér.

Puebla úr strætónum í gær!

Í gær var svo loka dagurinn, uppúr hádegi fórum við með rútu til Puebla þar sem við fórum í skoðunarferð um borgina, sjúklega fallegt og RISA stór borg. Svo borðuðum við öll saman og hópurinn fór að splundrast. Puebla krakkarnir fóru eftir matinn og svo 2 í viðbót. Við Emma og Mexico City krakkarnir tóku svo rútu til Mexico City og kvöddumst þar. Svo fórum við Emma og Luis, frá samtökunum hér úti með rútu til Ocotlán sem tók rúmlega 6 klukkutíma. Fjölskyldurnar okkar komu svo fljótlega að sækja okkur. Fjölskyldan hennar Emmu eiga son sem býr á Nýfundnalandi, mjög fyndið! Fjölskyldan mín er rosalega hugguleg, eru frekar rík og heimilið rosalega fallegt. Ég bý frekar nálægt miðbænum og tekur mig aðeins 10-15 mínútur að labba í vinnuna, sem er æði, umferðin hér er algjört brjálæði svo ég er fegin að þurfa ekki að vera í strætónum. 

Herbergið mitt :)



Í dag hitti ég svo Luis aftur og Emmu, við Emma keyptum okkur nýja síma og fengum mexíkóskt símanúmer. Svo sýndi hann okkur staðinn. Fórum inní eina skóbúð þar sem Nike Free kosta c.a 10 þúsund kr. Algjör brjálæði, á eftir að tapa mér í innkaupum hér, allt svo ódýrt! Ég skoðaði líka skólann þar sem ég mun vinna og spjallaði við skólastjórann og mér leist rosalega vel á hana. Hlakka mikið til að byrja að vinna á mánudaginn! Á morgun eða miðvikudaginn byrja ég svo á spænsku námskeiði og það eru 2 vikur.

fimmtudagur, 22. ágúst 2013

Ferðalagið til Mexico :)

Ferðalagið hófst í hádeginu á sunnudaginn en þá lögðum við Ragnar bróðir, Patrekur og Vaida af stað suður, keyrandi. Við Patrekur skiptumst á að keyra og ferðin gekk bara mjög vel. Sunnudagskvöldið, mánudagurinn og þriðjudagsmorgun fóru bara í það að eyða tíma með bræðrum mínum og Dagbjörtu og svo Ásdísi og fjölskyldu og ég hafði rosalega gaman að því.

Svo kom að því, ég vaknaði frekar snemma á þriðjudagsmorguninn enda tilhlökkunin í hámarki. Ég kvaddi Ásdísi og fjölskyldu og kláraði svo að ganga frá öllum farangrinum mínum og passaði að hafa allt á sínum stað. Daníel sótti mig uppúr 11 og við hittum Dagbjörtu og Ragnar. Við borðuðum öll saman, skoðuðum íbúðina sem Daníel er í og fengum okkur svo ís. Svo skutluðu þau mér uppá Keflavíkurflugvöll uppúr kl. 15. Flugið mitt til Boston var svo kl. 17:25 og ég gat sem betur fer sofið aðeins í vélinni, en alls ekki eins mikið og ég hefði viljað. Þegar ég kom til Boston beið ég í klukkutíma í röð til að komast í gegnum immigration og  flaug þar í gegn. Það þurfti reyndar að opna töskuna mína og skoða matinn sem ég var með í henni, tók með mér hangikjöt, flatkökur og íslenskt nammi. En það var allt í góðu. Svo tók við 12 klst bið á flugvellinum í Boston, með allan farangurinn minn og engin þæginleg sæti. Ég horfði á 2 myndir í tölvunni minni og rölti aðeins um flugvöllinn til að reyna að drepa tímann.

Þegar ég var búin að koma mér fyrir í eitt skipti fékk ég skilaboð á Facebook frá tveimur aðilum frá samtökunum í Mexico en þá voru þau að leita af mér. Þau höfðu fengið vitlausar upplýsingar og héldu að ég ætti að lenda í Mexico á þriðjudagskvöldinu en ekki í Boston. Þau voru búin að senda af stað manneskju á flugvöllinn og allt, en fengu réttar upplýsingar frá mér og það reddaðist.

Loksins klukkan rúmlega 4 í gærmorgun, þá 8 á íslenskum tíma gat ég checkað mig inn og losað mig við töskurnar. Ég fór í gegnum security og að hliðinu mínu. Fékk mér morgunmat á Dunkin’ donuts, beið í 40 mínútur eftir ristaðri beyglu. Ég hafði meiri en nógan tíma svo ég sat bara við hliðið, borðaði í rólegheitunum og kíkti aðeins í tölvuna. Svo klukkan rúmlega 7 var brottför til Chicago. Flugið þangað tók um 2 tíma og þegar ég kom til Chicago beið ég í tæpan klukkutíma. Aftur breyttist tíminn þannig nú er orðinn 5 tíma mismunur núna. Svo var það síðasta flugið til Mexico City. Það voru voða fáir í vélinni og það voru engin sjónvörp á sætunum heldur bara nokkur í loftinu, alveg glatað.

Þegar ég lenti loksins í Mexico eftir rúmlega sólarhrings ferðalag  tók við klukkutíma bið á flugvellinum eftir því að einhver myndi sækja mig. Stelpan kom loksins eftir að ég hringdi tvisvar í samtökin hérna úti og hún for með mig að skipta peningum og redda strætó miða til Puebla. Strætóferðin var um 2 klst og ég svaf eitthvað af leiðinni, annars var ég mikið bara að horfa í kringum mig.

Í Puebla var ég sótt af strák sem heitir Tony og vinnur fyrir samtökin hérna úti. Hann fór með mig heim til sín þar sem ég gisti í nótt. Hann er svona 28 ára og býr ennþá hjá foreldrum sínum, vinnur sem barþjónn þegar hann er ekki að stússast fyrir ICYE samtökin. Ég fór í sturtu og græjaði mig og við fórum svo til Cholula sem er frekar mikill djammstaður hérna. Þar voru 3 aðrir sjálfboðaliðar, stelpa og strákur frá Finnlandi og stelpa frá Þýskalandi ásamt vinum hans Tony. Stelpan frá Finnlandi verður í sama bæ og ég, Ocotlán sem er frábært! Við vorum á einhverjum pöbb í smá stund og fórum svo á næturklúbb. Ég fór svo með Tony heim til vinar hans og við fórum í guitar hero og spjölluðum. Svo rétt fyrir 4 fórum við Tony heim og ég LOKSINS uppí rúm! Það sem ég var orðin þreytt.


Í morgun vaknaði ég svo um 11 leytið og kláraði að græja mig. Þegar ég fór niður var Tony búinn að græja voða fínan morgunmat fyrir mig, scrambled egg og skinka, vaffla með sýrópi, brauð og kakómalt. Á eftir förum við á staðinn þar sem on-arrival campið verður, svona hálftíma héðan og helginni verður eytt með öllum sjálfboðaliðunum og starfsmönnum samtakanna hérna úti. Á sunnudaginn held ég svo til fjölskyldunnar minnar en það tekur c.a 12 tíma í strætó að komast þangað! Myndir koma svo aðeins seinna :)

þriðjudagur, 6. ágúst 2013

Styttist í brottför!

Nú styttist heldur betur í brottför hjá mér, sunnudaginn 18. ágúst fer ég frá Ísafirði og flýg til Boston 20. ágúst. Þaðan flýg ég svo til Mexico City 21. ágúst og verð í Mexico næsta árið.

Ég mun dvelja hjá fjölskyldu í bænum Ocotlán í Jalisco fylki. Ocotlán er rétt hjá Guadalajara sem er næst stærsta borg Mexico. Ég verð að vinna í ríkisreknum skóla fyrir 4-5 ára börn.

Ég er að fara sem sjálfboðaliði á vegum AUS (Alþjóðleg Ungmennaskipti).

"Alþjóðleg ungmennaskipti eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðislusamtök sem gefa ungu fólki möguleika á því að kynnast menningu og samfélagi annarra þjóða. Markmið AUS er að gefa ungu fólki tækifæri til ferðast til framandi landa og upplifa ólíka menningarheima í þeim tilgangi að auka þekkingu og skilning á ólíkri menningu og samfélögum og stuðla þannig að friði og skilningi milli einstaklinga og þjóða og vinna gegn fordómum og hleypidómum hvers konar." [aus.is]

Hér verður hægt að fylgjast með ferðum mínum og ég mun vonandi vera dugleg að setja inn fréttir! :)