mánudagur, 26. ágúst 2013

Komin heim!

Eftir frábæra helgi með starfsmönnum Siijuve, sem eru samtökin hér úti og hinum sjálfboðaliðunum er ég loksins komin til fjölskyldunnar minnar.
Campið var æði, fengum að smakka allskonar týbískan mexíkóskan mat. Þau borða rosalega mikið af sætum mat, brauðið er sykrað og svo eru baunir með öllu! Maturinn var yfir höfuð góður. Hér er hádegismaturinn stærsta máltíðin, allavega í campinu fengum við 4 rétta hádegismat og bara e-ð létt í kvöldmat. Veðrið var geggjað á daginn, sól og blíða en það ringdi öll kvöldin. Fyrsta kvöldið var mesta rigningin, og ég hef aldrei séð annað eins. Á daginn þegar það var frítími sátum við við sundlaugina og chilluðum. Ég brann örlítið á öxlunum, annars bara tan!

Á hverju kvöldi var djamm, mega djamm og mexíkanarnir alltaf síðastir heim! Það sem það geta drukkið!! En það var alltaf rosa gaman, fyrstu tvö kvöldin fór ég heim rúmlega miðnætti en síðasta kvöldið ekki fyrr en rúmlega 5, það var líka síðasta kvöldið okkar allra saman. Við lærðum aðeins að dansa salsa sem var æði og ég ætla pottþétt að læra það hér.

Puebla úr strætónum í gær!

Í gær var svo loka dagurinn, uppúr hádegi fórum við með rútu til Puebla þar sem við fórum í skoðunarferð um borgina, sjúklega fallegt og RISA stór borg. Svo borðuðum við öll saman og hópurinn fór að splundrast. Puebla krakkarnir fóru eftir matinn og svo 2 í viðbót. Við Emma og Mexico City krakkarnir tóku svo rútu til Mexico City og kvöddumst þar. Svo fórum við Emma og Luis, frá samtökunum hér úti með rútu til Ocotlán sem tók rúmlega 6 klukkutíma. Fjölskyldurnar okkar komu svo fljótlega að sækja okkur. Fjölskyldan hennar Emmu eiga son sem býr á Nýfundnalandi, mjög fyndið! Fjölskyldan mín er rosalega hugguleg, eru frekar rík og heimilið rosalega fallegt. Ég bý frekar nálægt miðbænum og tekur mig aðeins 10-15 mínútur að labba í vinnuna, sem er æði, umferðin hér er algjört brjálæði svo ég er fegin að þurfa ekki að vera í strætónum. 

Herbergið mitt :)



Í dag hitti ég svo Luis aftur og Emmu, við Emma keyptum okkur nýja síma og fengum mexíkóskt símanúmer. Svo sýndi hann okkur staðinn. Fórum inní eina skóbúð þar sem Nike Free kosta c.a 10 þúsund kr. Algjör brjálæði, á eftir að tapa mér í innkaupum hér, allt svo ódýrt! Ég skoðaði líka skólann þar sem ég mun vinna og spjallaði við skólastjórann og mér leist rosalega vel á hana. Hlakka mikið til að byrja að vinna á mánudaginn! Á morgun eða miðvikudaginn byrja ég svo á spænsku námskeiði og það eru 2 vikur.

2 ummæli:

  1. Krúttlegt herbergið þitt :) þetta hljómar allt svo vel og sannarlega spennandi tímar framundan hjá þér.

    SvaraEyða
  2. gaman að fylgjast með þér elskan og gangi þér vel

    SvaraEyða