Í morgun vaknaði ég svo hálf 9, græjaði mig og borðaði morgunmat og labbaði svo í fylgd mömmunar í barnaskóla hérna rétt hjá. Spænsku kennarinn minn, Sergio kennir í þeim skóla á morgnanna og vildi endilega sýna okkur hann. Þarna voru börn allt frá svona 5-13 ára, jafnvel aðeins eldri. Þetta var blanda af kinder, primary og secondary. Krakkarnir voru að æfa fyrir skrúðgöngu sem verður um miðjan september og við Emma löbbuðum með þeim, rosa gaman. Svo fegnum við að sitja landafræði- og sögutíma. Segio kenndi sögutímann en þar sem Emma er með háskólagráðu í landafræði vildi hún endilega fá að upplifa spænskan landafræðitíma.
Þegar ég kom heim var amman búin að elda fisk og spagettí og gera salat og ég borðaði hádegismat (hér er hádegismaturinn alltaf uppúr 2).
Spænskan gengur mjög vel hjá mér, ég skil orðið ágætlega mikið en kann ekki eins vel að svara. Í skólanum í dag leið mér eins og ég væri eitthvað fræg því allir krakkarnir vildu spyrja okkur endalausar spurningar, hvað krakkar gera á Íslandi/Finnlandi, hvort við hlustum á One Direction, hvað við værum gamlar, afhverju við værum í Ocotlán og allskonar. Við vorum algjörlega miðpunktur athyglinnar í frímínútum sem var frekar vandræðilegt.
Ég fer í 4 spænsku tímann í dag og á svo 2 vikur eftir. Í kvöld kemur svo "systir" mín í helgarfrí frá háskólanum og við ætlum út á bar með Siijuve hópnum, Emmu og fleiri vinum þeirra. Ég hlakka mikið til að kynnast krökkum héðan og æfa mig meira í spænskunni :) Á morgun ætlum við "fjölskyldan" svo að fara til Guadalajara í smá dagsferð, hlakka rosalega til að skoða borgina og versla aðeins!!
Þetta hefur verið gaman :) skemmtu þér vel í kvöld.
SvaraEyðaMússí mússí.