Nú styttist heldur betur í brottför hjá mér, sunnudaginn 18. ágúst fer ég frá Ísafirði og flýg til Boston 20. ágúst. Þaðan flýg ég svo til Mexico City 21. ágúst og verð í Mexico næsta árið.
Ég mun dvelja hjá fjölskyldu í bænum Ocotlán í Jalisco fylki. Ocotlán er rétt hjá Guadalajara sem er næst stærsta borg Mexico. Ég verð að vinna í ríkisreknum skóla fyrir 4-5 ára börn.
Ég er að fara sem sjálfboðaliði á vegum AUS (Alþjóðleg Ungmennaskipti).
"Alþjóðleg ungmennaskipti eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðislusamtök sem gefa ungu fólki möguleika á því að kynnast menningu og samfélagi annarra þjóða. Markmið AUS er að gefa ungu fólki tækifæri til ferðast til framandi landa og upplifa ólíka menningarheima í þeim tilgangi að auka þekkingu og skilning á ólíkri menningu og samfélögum og stuðla þannig að friði og skilningi milli einstaklinga og þjóða og vinna gegn fordómum og hleypidómum hvers konar." [aus.is]
Hér verður hægt að fylgjast með ferðum mínum og ég mun vonandi vera dugleg að setja inn fréttir! :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli