föstudagur, 30. ágúst 2013

Fyrstu dagarnir í Ocotlán

Ocotlán er fínn staður, frekar lítill á þeirra mælikvarða en miðað við Ísafjörð, er þetta frekar stórt. Ég er rosalega ánægð með staðsetninguna mína en Emma, vinkona mín býr frekar útúr bænum og var t.d í dag 50 mínútur að labba þangað sem ég var 10 mínútur að labba.

Síðustu dagar hafa verið mjög rólegir, spænsku námskeið seinni partinn og chill fyrri partinn. Ég hef aðeins rölt um hverfið í frítímanum og mentorinn minn, Luis er búinn að kenna mér að taka strætó í háskólann þar sem spænsku námskeiðið er. Spænsku tíminn í gær var 3klst en við tókum okkur smá pásu til að skoða háskólann. Svo eftir námskeiðið í gær fór ég út að borða með fjölskyldunni minni, mömmunni, pabbanum og ömmunni sem er í heimsókn. Við fórum á ekta mexíkóskan stað sem er staðsettur í bílskúrnum hjá eigendum, voða huggulegt. Hér kaupiru matinn í stykkjatali, 1 taco/quesadilla eða þess háttar kostaði um 5 pesos en það eru um 44isk. Mamman pantaði fyrir mig eitt af öllu, taco, quesadilla, enchillada og eitthvað eitt í viðbót sem ég man ekki hvað var. Máltíðin mín kostaði semsagt um 200isk! Maturinn var rosalega góður eins og flest allur matur hér.


Í morgun vaknaði ég svo hálf 9, græjaði mig og borðaði morgunmat og labbaði svo í fylgd mömmunar í barnaskóla hérna rétt hjá. Spænsku kennarinn minn, Sergio kennir í þeim skóla á morgnanna og vildi endilega sýna okkur hann. Þarna voru börn allt frá svona 5-13 ára, jafnvel aðeins eldri. Þetta var blanda af kinder, primary og secondary. Krakkarnir voru að æfa fyrir skrúðgöngu sem verður um miðjan september og við Emma löbbuðum með þeim, rosa gaman. Svo fegnum við að sitja landafræði- og sögutíma. Segio kenndi sögutímann en þar sem Emma er með háskólagráðu í landafræði vildi hún endilega fá að upplifa spænskan landafræðitíma. 

Þegar ég kom heim var amman búin að elda fisk og spagettí og gera salat og ég borðaði hádegismat (hér er hádegismaturinn alltaf uppúr 2). 


Spænskan gengur mjög vel hjá mér, ég skil orðið ágætlega mikið en kann ekki eins vel að svara. Í skólanum í dag leið mér eins og ég væri eitthvað fræg því allir krakkarnir vildu spyrja okkur endalausar spurningar, hvað krakkar gera á Íslandi/Finnlandi, hvort við hlustum á One Direction, hvað við værum gamlar, afhverju við værum í Ocotlán og allskonar. Við vorum algjörlega miðpunktur athyglinnar í frímínútum sem var frekar vandræðilegt. 

Ég fer í 4 spænsku tímann í dag og á svo 2 vikur eftir. Í kvöld kemur svo "systir" mín í helgarfrí frá háskólanum og við ætlum út á bar með Siijuve hópnum, Emmu og fleiri vinum þeirra. Ég hlakka mikið til að kynnast krökkum héðan og æfa mig meira í spænskunni :) Á morgun ætlum við "fjölskyldan" svo að fara til Guadalajara í smá dagsferð, hlakka rosalega til að skoða borgina og versla aðeins!!



1 ummæli:

  1. Þetta hefur verið gaman :) skemmtu þér vel í kvöld.
    Mússí mússí.

    SvaraEyða